Umsjón með stefnumótunarverkefnum, stórum og smáum. Boðið er upp á margskonar aðferðir við að móta stefnu félaga, samtaka, stofnana og fyrirtækja, til lengri eða skemmri tíma.
Svokölluð SVÓT-greining er gagnlegt tæki til að meta stöðuna eins og hún er, en einnig til að leggja grunn að framtíðinni. Með því að greina styrkleika og veikleika leggjum við mat á stöðuna eins og hún er og með því að meta ógnanir og tækifæri metum við framtíðarkostina. Ódýrt og einfalt tæki sem reynst getur ómetanlegt til að vinna úr þröngri stöðu.
Með því að fá utanaðkomandi aðila til að stýra umræðum innan fyrirtækja eða samtaka og vinna úr þeim, er oft auðveldara að komast að kjarna máls en þegar málsaðilar stýra umræðum sjálfir. Með þessu má oft fá nauðsynlega fjarlægð á viðfangsefni og draga fram nýja fleti.