Ákvarðanir sem eru teknar á grundvelli nákvæmra upplýsinga eru undantekningarlítið betri til lengri tíma litið en ákvarðanir sem eru teknar „út í loftið“. Í mörgum tilvikum eru þessar upplýsingar til staðar og þarf ekki að gera neinar sérstakar ráðstafanir til að nýta þær. Í öðrum tilvikum eru þær fyrirliggjandi, en ekki á því formi eða útfærðar með þeim hætti að auðvelt sé að lesa í þær og taka ákvarðanir á grundvelli þeirra. Þá þarf að greina þær og setja fram með skýrum hætti, áður en þær eru nýttar til ákvarðanatöku. Í þriðja lagi koma oft upp aðstæður þar sem afla þarf nýrra upplýsinga áður en ákvarðanir eru teknar eða stefna mótuð.
Starfsfólk Viðhorfs hefur yfirgripsmikla og fjölbreytta reynslu á öllum þessum sviðum og í að meta hvers konar upplýsingar eru gagnlegastar við þær aðstæður sem sum um er að ræða hverju sinni.
Tökum að okkur að gera viðhorfskannanir, stórar og smáar, sérsniðnar að þörfum viðskiptavinarins. Getum tekið að okkur alla verkþætti eða afmarkaða þætti.
Rýnihópar eru góð aðferð til að draga fram skoðanir og viðhorf hópa án þess að gera umfangsmikla og kostnaðarsama viðhorfskönnun. Rýnihópar eru afar gagnlegir í innri vinnu samtaka, stofnana og fyrirtækja og stefnumótunarvinnu. Rýnihóparannsóknir eru sveigjanlegar og hægt að sníða að þörfum hverju sinni.
Höfum víðtæka reynslu í að kortleggja skipulag og stjórnsýslu stofnana, samtaka eða fyrirtækja og gera tillögur um með hvaða hætti skipulagi verði best fyrir komið til að ná hámarksárangri og til að draga fram bestu eiginleika og styrk hvers og eins.
Greining á umfjöllun fjölmiðla getur gefið góða vísbendingu um stöðu samtaka eða fyrirtækis í umræðu. Hægt er að nálgast slíka greiningu með margvíslegum hætti og sérsníða hana að þörfum viðskiptavinarins. Í þessu sambandi er hægt að nýta og greina gögn sem aðrir safna (Fjölmiðlavaktin) eða gera sjálfstæða rannsókn frá grunni, allt eftir tilgangi og markmiðum rannsóknarinnar.
Kortleggjum hegðunarmynstur hópa með svokallaðri dagbókaraðferð. Það getur verið gott fyrir tiltekin viðfangsefni að hafa vitneskju um það hvort og hvenær tilteknir hópar einstaklinga gera ákveðna hluti. Til að beita þessari aðferð þarf nána samvinnu þátttakenda í nokkurn tíma.