Skipulegar, reglulegar og vel framsettar upplýsingar eru oft meira virði en stórar og dýrar auglýsingar í fjölmiðlum. Öllum félögum, fyrirtækjum og stofnunum er mikilvægt að hafa góða ímynd og trúverðugleika. Það er vandasamt og oft tímafrekt að byggja upp góða ímynd, en það er bæði einfalt og fljótlegt að eyðileggja hana.
Kynningarmál eru meðal þeirra verkefna sem oft verða útundan hjá félögum, stofnunum og litlum fyrirtækjum. Þau geta verið að gera frábæra hluti – en enginn veit af því nema stjórnin, félagarnir og starfsfólkið – stundum bara starfsfólkið.
Kynningarmál og ímyndarvinna byggja oft á mörgum litlum, einföldum skrefum og aðgerðum, sem hvert um sig gerir ekki gæfumuninn – en þegar áhrifin af þeim öllum koma saman, þá skapa þau trausta ímynd.
Viðhorf veitir félögum, fyrirtækjum og stofnunum rágjöf um mótun og viðhald traustrar ímyndar – og stígur með þeim skrefin.
Áður en farið er af stað í kynningu og ímyndavinnu er mikilvægt að meta stöðuna og móta síðan áætlun um skrefin. Það borgar sig að gefa sér tíma í að meta stöðuna, markmiðin og sóknarfærin. Framhaldið er handavinna. Sérfræðingar Viðhorfs taka að sér greiningarvinnuna og mótun aðgerðaáætlunar í samstarfi við viðskipavini.
Tökum að okkur umsjón með hvers konar prentaðri útgáfu. Það getur falið í sér einstaka afmarkaða þætti, eða útgáfu frá upphafi til loka. Felur m.a. í sér ritstjórn, fréttaskrif, greinaskrif, viðtöl, öflun tilboða í hönnun, umbrot og prentun, auk samskipta við hönnuði og prentsmiðjur.
Þegar upp er staðið, þarf ekki að vera dýrara að fá fagfólk í verkin en að vinna þau sjálfur, fyrir utan að árangurinn verður oftast betri. Starfsfólk Viðhorfs býr yfir áratugareynslu af ritstjórn og útgáfumálum, hvort sem um er að ræða blöð, bæklinga eða vefefni.
Tökum að okkur að skipuleggja herferðir, kynningu á atburðum, stofnunum, fyrirtækjum eða samtökum. Hægt er að semja um afmörkuð verkefni eða gera þjónustusamning til lengri tíma.
Næstum allir Íslendingar hafa aðgang að internetinu. Það er ódýr aðferð til að kynna starfsemi, vöru og þjónustu. Þess vegna skiptir höfuðmáli að útlit og innihald vefja sé aðgengilegt og leiðarkerfið sé skýrt. Við tökum að okkur að alla þætti vefgerðar, skilgreiningu markhóps (-hópa), mat á þörfum fyrir innihald, leit tilboða í vefumsjónarkerfi og samningagerð, umsjón með uppsetningu og efnisinnsetningu. Sjáum ennfremur um útlitshönnun og forritun, sé þess óskað.
Til þess að tryggja heimsóknir markhópa á vefi þeirra aðila sem halda þeim úti, er nauðsynlegt að vefirnir séu lifandi. Það er gert með því að tryggja að forsíðuefnið á þeim breytist reglulega, sé uppfært og að settar séu nýjar fréttir með tiltölulega stuttu millibili. Að öðrum kosti hættir að vera “spennandi” fyrir þá sem tilheyra tilteknum markhópi að heimsækja vefinn. Reynslan kennir að þeir hætta því með tímanum.
Við tökum að okkur að vinna efni á vefi, bæði fréttir og annað efni og tryggja reglulega uppfærslu forsíðuefnis í samráði við vefeigendur. Jafnt kemur til greina að gera samning um afmörkuð verkefni, eða þjónustusamning til lengri tíma.
Við kynningu á upplýsingum og sjónarmiðum getur framsetningin gert gæfumuninn. Við tökum að okkur framsetningu á texta á hnitmiðaðri, góðri íslensku.
Höfum mikla reynslu í að draga saman aðalatriði úr miklu magni af upplýsingum í stuttan texta. Getur til dæmis komið að góðum notum ef taka skal saman söguágrip, t.d. í aðdraganda afmæla og tímamóta, eða af margvíslegum öðrum tilefnum.
Oft liggja miklar upplýsingar um félög og fyrirtæki og sögu þeirra í minni þeirra einstaklinga sem lengst hafa starfað á viðkomandi vettvangi. Þegar menn láta af störfum, eða hníga á efri ár, er skynsamlegt að taka við þá viðtöl, til að þekkingin og sagan fari ekki forgörðum.
Það getur verið mikils virði að eiga gott myndasafn sem lýsir starfi félaga og stofnana í gegnum tíðina. Það er hins vegar sjaldnast til mikillar ánægju eða gagns þegar myndir eru í möppum og kössum, lítt flokkaðar og vitneskjan um það við hvaða tækifæri þær eru teknar hverfur smám saman.Við tökum að okkur að koma reglu á myndasöfn stofnana og samtaka og koma þeim öllum á stafrænan gagnagrunn sem auðvelt er að leita í.
Þýðingar á hvers kyns textum úr ensku, löngum eða stuttum