Viðhorf

Fjölbreytt þekking, ráðgjöf og rannsóknir

Viðhorf ehf.

Viðhorf fæst við þrjá meginflokka verkefna: Kynningarmál; stefnumótun og rannsóknir. Oft fléttast verkefni af þessu tagi saman og því hægt að fylgja verkefni frá upphafi til enda, eða vinna einstaka verkþætti.

Löng og fjölbreytt reynsla starfsmanna úr námi og starfi gerir Viðhorfi mögulegt að bjóða upp á margvíslega og yfirgripsmikla þjónustu við samtök, stofnanir og fyrirtæki. Lykillinn að góðu gengi er hæfni til að meta raunverulegar þarfir viðskiptavinar og sérsníða lausnir að þeim. Verkefni eru ýmist unnin af starfsfólki Viðhorfs, eða í samvinnu við ýmsa samstarfsaðila og undirverktaka, sem hver um sig hefur sérhæfingu og reynslu á sínu sviði. Hlutverk Viðhorfs er því oft að leiða saman ólíka sérfræðinga og stýra vinnu þeirra.

Meðal nýlegra verkefna

Meðal verkefna sem nú er unnið að eða er nýlokið, má nefna viðtöl við frambjóðendur til embættis formanns VM og önnur efnisvinnsla í blað félagsins, vefvinnsla og samkomulag um reglulega uppfærslu vefja verkalýðsfélaganna í Skagafirði, vefvinnsla og reglulegar uppfærslur á vef Trésmiðafélagsins og viðtöl í afmælisrit Rauðakrossins í Kópavogi. Unnið er að mati á árangri ímyndarvinnu Afls, starfsgreinafélags og nokkrum rannsókna- og úttektarverkefnum fyrir sveitarfélög og stofnanir. Unnið er að undirbúningi nýs vefjar fyrir verkalýðsfélag á landsbyggðinni, auk nokkurra annarra kynningar- og rannsóknaverkefna.

Fyrirtækið

Viðhorf var stofnað árið 1992 af dr. Guðmundi Rúnari Árnasyni, stjórnmálafræðingi og Ingibjörgu Jónsdóttur, félagsfræðingi. Auk þess að sinna verkefnum fyrir Viðhorf, hefur Guðmundur Rúnar starfað hjá ýmsum aðilum, svo sem Hagstofu Íslands, Gallup á Íslandi, Rannsóknaþjónustu Háskólans og var um 8 ára skeið ritstjóri Vinnunnar og upplýsingafulltrúi Alþýðusambands Íslands.